Leita












Forsíða

18. febrúar 2010
Þjóðarvettvangur um brýn þjóðfélagsmál

Byggt á aðferðum og gildum Þjóðfundarins

 Uppbyggilegur vettvangur til umræðu

 

Út frá þrem stærstu gildum Þjóðfundarins 2009 hefur verið myndaður vettvangur á netinu þar sem gefst tækifæri á að ræða brýn þjóðfélagsmál í smáum hópum hvar sem er á landinu undir einföldum og ögðum vinnureglum.
 

Markmiðið er að fá fólk til að hittast í smáum hópum og ræða brýn málefni þannig að allir fái jafnt tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri eftir tilsettum leikreglum.

Á vefsvæðinu www.thjodarvettvangur.is er hægt að sækja gögn og leiðbeiningar með einföldum útskýringum sem leiða hópinn í gegnum umræðuna .

 

Tilgangurinn er að mynda uppbyggilega og agaða umræðu um erfið og tilfinningarík þjóðfélagsmál

 

Í lokin kemur hópurinn sér saman um eina setningu sem verður sett inn á www.thjodarvettvangur.is þar sem allar setningar úr öðrum umræðuhópum verða birtar og aðgengilegar. Setningarnar munu endurspeglar lausnamiðaðar áherslur útfrá umræðuefninu með mið af gildunum þremur; réttlæti, virðingu og heiðarleika.

 

Veffangið er www.thjodarvettvangur.is. Vettvangurinn verður formlega opnaður laugardaginn 20. febrúar og verður opinn í eina viku til 27. febrúar.

 

Fyrsta málefni Þjóðarvettvangs er Icesavemálið 

 

Með von um umfjöllun og góða þátttöku,

Þjóðarvettvangur

 

 

 

Nánari upplýsingar veita:

Þorgils s: 698-5302

Jónína s: 693-9814

María s: 858-5900

Skúlí Örn s:

 



Til baka

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta