Félagsstarf aldraða
Félagsstarf Garðbúa sem eru 60 ára og eldri fer fram í Auðarstofu að Gerðavegi 1. Húsnæðið var tekið í notkun í október sl. og er mikil ánægja með aðstöðuna og þá möguleika sem skapast hafa í húsinu.
Húsnæðinu er skipt í tvo góða sali, vinnuherbergi, setustofu, eldhús og herbergi sem nýtist sem lager fyrir ýmsan varning sem notaður er til starfsins. Möguleikar á fjölbreyttu starfi eru miklir og góð aðstaða til handverksgerðar, hreyfingar, leikfimi, dansæfinga og leikja. Eldri borgarar völdu nafnið Auðarstofa fyrir húsnæðið. Í máli Hreins Guðbjartssonar sem flutti ávarp við opnunina koma fram að nafnið hefði verið valið til að minnast Auðar Tryggvadóttur sem bjó að Gerðavegi 1 og rak þar verslun ásamt manni sínum Birni Finnbogasyni á neðri hæð hússins þar sem félagsstarfið er nú. Auður tók virkan þátt í félagsstarfi á meðan hún lifði og var m.a. formaður Kvenfélagsins Gefnar í 25 ár. Eins hefur nafnið skýrskotun í þann mannauð sem býr í eldri borgurum og hvernig hann verður nýttur og efldur í öflugu félagsstarfi.


Skoðaðu myndasafn Auðarstofu
Félagsstarfið Auður 60 ára og eldri - Dagskrá 06/01- 28/05 2009
Þriðjudagar og miðvikudagar 13:00-16:00 handavinna, föndur, gler,útskurður,og fleira eftir því sem hver vill. Kaffi 300kr
Miðvikudaga leikfimi kl 11:30 -12:30 mæting 11:15
léttar veitingar td. Súpa,pasta eða salat kr 500
Leikfimin er í boði bæjarinns það kostar ekkert að mæta.Þetta eru léttar æfingar sem allir geta. Þú mátt koma og prófa og athuga hvort þetta hentar fyrir þig.
Fimmtudagana notum við til að spila bingo,félagsvist, kanski eitthvað fleira.
Þorrablót
Föstudaginn 30/01 kl18:00 verður þorrablót 1500 kr það er greitt niður með flóamarkaðsjóði , við fáum harmonikkuleikara til að leika
fyrir dans og söng.
Vinsamlegast pantið og borgið fyrir 27/01
Allir 60 Ára og eldri velkomnir
Febrúar
05/02 förum við í Reykjanesbæ í föndurbúð og kannski fáum við okkur kaffi.
Mars
19/03 Bíóstemning
Apríl
22/04 Fögnum við sumri og bjóðum vinum í kaffi.
Maí
Vorferðalag
.
Allar dagsetningar geta breyst, þá auglýsum við það í Auðarstofu.
Ingibjörg 896-7935 Sigurborg 848-8445
Skoðaðu myndasafn Auðarstofu með því að smella hér

Rausnarlegir styrkir voru veittir til félagsstarfsins á síðasta ári.
Kvenfélagið Gefn gaf 100.000 kr
Slysavarnarfélag kvenna gaf 50.000kr
Við keyptum saumavél og það sem til þarf fyrir bútasaum, verkfæri fyrir tréútskurð og tæki til glerskurðar.
Við þökkum kærlega fyrir og nú getum við boðið upp á fjölbreytt starf.