Leita








Gróðurfar

Blómplöntur og fléttur
Nokkrar háplöntur vaxa helst í fjörusandi rétt ofan við fjöruna og eru oftast nefndar strandplöntur eða fjöruplöntur.  ?ær hafa flestar þykk og safarík blöð, þar sem þær geta safnað vatni, en vatn getur verið af skornum skammti í sandinum við efri mörk fjöru.  Vatnið getur verið saltmengað og saltið sem plönturnar taka upp með rótunum getur skaðað þær.  Með þynningu í vatnsmiklum blöðum er dregið úr hættunni.  Hér eru sýndar algengustu fjöruplönturnar á Garðsskaga og jafnframt flétta, sem setur svip sinn á grjótgarðinn ofan fjörunnar.


Baldursbrá Bláilja Fífill Fjöruarfi
Fjörukál Hrímblaðka Kúmen Melgresi
Skarifífill Tágamura Veggjaglæða

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta