8. júlí 2010
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga óskar eftir fólki með hjartað á réttum stað!
Fjölskyldu- og velferðarnefnd Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga óskar eftir að ráða liðveisluaðila með góða reynslu af störfum með fötluðum. Liðveisla er áhugavert og gefandi starf sem felst í því að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun einstaklings með fötlun. Um er að ræða aðstoð til að njóta menningar og félagslífs og auka félagslega færni einstaklingsins svo dæmi sé tekið. Starfið er mjög einstaklingsbundið þar sem þarfir þjónustuþega eru hafðar að leiðarljósi. Vinnutími er ca. 4-5 tímar á viku og er sniðinn eftir þörfum allra aðila. Umsóknir þurfa að berast fyrir 16. júlí 2010. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björg Siguðarðdóttir, félagsráðgjafi eða Díana Hilmarsdóttir ráðgjafi hjá Félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga í síma 420-7555.

Til baka
|