21. janúar 2010
- Fundur í skólanefnd Garðs, fimmtudaginn 21. Janúar 2010, haldin í Gerðaskóla kl:18:30
Mætt voru: Agnes Ásta, Oddný Guðbjörg Harðardóttir, Ásbjörn Jónsson, Gísli Heiðarsson, Ágústa Ásgeirsdóttir, Guðríður Brynjarsdóttir , Jónína Holm og Arna Arnbjörnsdóttir.
1. Mál Starfsmannamál. Jónína Magnúsdóttir og Hranhildur Valgarðsdóttir hafa látið af störfum hjá skólanum og hafa Erla Ásmundsdóttir og Lilja Dögg Friðriksdóttir hafa komið í stað þeirra. Hildur Guðný stuðningsfulltrúi hefur einnig látið af störfum og Díana sem er starfsmaður í skólagæslu hefur tekið að sér starf stuðningsfulltrúa.
2. Mál Starfsmannastefna og endurmenntun starfsmanna. Skólanefnd leggur til við bæjarráð að ákvæði um endurmenntun í starfsmannastefnu bæjarins verði skýrðar í samráði við forstöðumenn stofnana.
3. Mál Umbætur vegna ábendinga í skýrslu um mat á skólastarfi í Garði. Skólanefnd mælir með þvi að teymið sem sá um mat á skólastarfi í Garði , verði fengið til að leggji aftur fyrir foreldrakönnun. Skólastjóra falið að hafa samband við viðkomandi.
4. Mál Vígsla skólahúsnæðis. Salurinn er að verða fullkláraður. Áætlað er að efri hæðin i nýbyggingunni verði tilbúin 12 febrúar nk. Skólastjóra er falið að plana vígslu skólashúsnæðisins. Stjórnendum skólans er falið að standa fyrir hugmyndasamkeppni um nafn á salnum.
5. Mál Reglur vegna útleigu salar. Skólanefnd leggur áherslu á að þegar salurinn verður leigður út verði ávalt starfsmaður á staðnum. Starfsreglur verði settar og gjaldskrá ákveðin áður en farið verður að leigja hann út.
6. Mál Framkvæmdir við skólann. Framkvæmdir við skólann ganga vel.
7. Mál Önnur mál. Engin önnur mál voru á dagskrá
Fundi slitið kl :20:00
Til baka
|
|