82.fundur 7.júlí 2010
FUNDARGERÐ 82. fundur Sveitarfélagsins Garðs
Fundur haldinn í bæjarstjórn Garðs, miðvikudaginn 7. júlí kl. 17:30 í fundarsal Bæjarskrifstofu Garðs, Sunnubraut 4.
Mætt eru: Einar Jón Pálsson forseti bæjarstjórnar, Brynja Kristjánsdóttir, Einar Tryggvason, Kolfinna S. Magnúsdóttir, Benedikt G. Jónsson, Jónína Holm, Davíð Ásgeirsson
Halla Þórhallsdóttir ritar fundargerð.
Í upphafi fundar bauð forseti, Einar Tryggvason velkominn á sinn fyrsta fund bæjarstjórnar.
1. Fundargerð 129. fundar bæjarráðs frá 30. júní sl.
Bókun N-lista varðandi 2. mál fundargerðar bæjarráðs. N-listinn bendir á að bæjarráð hefur ekki umboð til að afgreiða ráðningarsamning við bæjarstjóra. Eðlilegra hefði verið að leggja samninginn fyrir bæjarráð til kynningar og setja hann síðan á dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar. N-listinn mótmælir hækkun á launum til bæjarstjóra sem gert er ráð fyrir í samningnum. Á meðan aðrir starfsmenn bæjarins fá ekki launahækkun er það siðlaust að sá starfsmaður sem þiggur hæstu launin fái einn launahækkun við þessar aðstæður. N-listinn telur einnig að hækkun á akstursviðmiðum sé fjarri öllum raunveruleika. Réttara væri að bæjarstjóri héldi akstursbók og fengi greitt samkvæmt henni.
Bókun D-lista. Afgreiðsla ráðningarsamnings hlýtur fullnaðarafgreiðslu á þessum fundi bæjarstjórnar, þetta verkferli er þekkt og brýtur ekki í bága við reglur. Við gerð samnings við bæjarstjóra var tekið mið af hækkun launavísitölu á síðustu 12 mánuðum en það er sá tími frá því er síðasti samningur var gerður. Launavísitalan hefur hækkað um 4% á þeim tíma.
Bókun N-lista varðandi 22.mál fundargerðar bæjarráðs. N-listinn fer fram á að uppgjör vegna Sólseturshátíðar verði lagt fram í bæjarráði eða á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir sumarfrí ásamt upplýsingum um það hverju hátíðin skilar til bæjarins. Einnig vill N-listinn að markmið hátíðarinnar verði rætt og hvernig auka megi þátttöku fyrirtækja og félagasamtaka með það í huga að efla hag þeirra af hátíðarhöldunum.
Fundargerðin samþykkt með 6 atkvæðum, annar fulltrúi N-lista situr hjá.
2. 394. fundur stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. dags 24. júní sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
3. 775. fundur Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 25. júní sl.
Fundargerðin lögð fram.
4. 32. fundur Byggingarnefndar Gerðaskóla, dags 1. júlí sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
5. 1. fundur Skólanefndar Gerðaskóla, dags 1. júlí sl.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
6. Umsókn Ariel ehf um leyfi til að reka veitingarstað með áfengisveitingum í flokki 2 að Hólmsvelli í Leiru.
Bæjarstjórn samþykkir erindið fyrir sitt leyti. Samþykkt samhljóða.
7. Tilboð um kaup á Útskálavegi 3, fastanúmer 231-9157, dags 29. júní sl.
Bæjarstjórn hafnar erindinu.
Samþykkt samhljóða.
Bókun N-lista N-listinn er alfarið á móti því að bærinn kaupi eign Útskálatúns ehf að Útskálavegi 3. Ef ekkert verður af hótelbyggingu skulu eigendur skila lóðinni sem næst í þeirri mynd er þeir tóku við henni eða eins og tekið er fram í byggingarleyfi. Ekkert verði í framtíðinni byggt við Útskála sem heftir uppbyggingu staðarins sem menningarseturs og kirkjustaðar.
8. Bréf frá Ríkisskattstjóra, dags 21. júní sl.
Efni bréfsins er staðfesting á skráðum hundraðshluta útsvasr í Garði.
Bréfið lagt fram.
9. Bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, dags 25. júní sl.
Efni bréfsins er skerðing á framlögum úr Námsgagnasjóði vegna efnahagsaðstæðna. Gert er ráð fyrir að framlag Garðs vegna Gerðaskóla verði 310.707 kr.
Bréfið lagt fram.
10. Bréf frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dags 28. júní sl.
Í bréfinu kemur fram áætlað framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna hækkunar á tryggingargjaldi á árinu 2010. Áætlað framlag Garðs er 4.705.920 kr.
Bréfið lagt fram.
11. Sumarleyfi bæjarstjórnar.
Forseti bar upp tillögu um að sumarleyfi bæjarstjórnar verði í júlí og ágúst. Næsti reglulegi fundur bæjarstjórnar verði haldinn 8. september. Ennfremur að bæjarráði verði veitt umboð til fullnaðarafgreiðslu mála í orlofi bæjarstjórnar, í samræmi við 39. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Samþykkt með 5 atkvæðum gegn 2 atkvæðum N-lista Bókun N-lista N-listinn telur eðlilegt að bæjarráð fái heimild til fullnaðarafgreiðslu í málum þar sem bæjarráð er einhuga.Önnur mál verði tekin fyrir þegar bæjarstjórn kemur saman úr sumarfríi.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:15
Til baka
|
|