Leita








Fundargerðir

15. júlí 2010

Íþrótta- og æskulýðsnefnd

Dags. 15. Júlí 2010

Mættir á fundinn voru:
Einar Jón Pálsson, Einar Tryggvason, Eva Rut Vilhjálmsdóttir, Eysteinn Guðvarðarson, Sævar Leifsson, Hannes Tryggvason, Oddur Jónsson, Björn Vilhjálmsson, Agnes Á. Woodhead.

Einar Jón mætti sem fulltrúi bæjarstjórnar og hóf fundinn með innleggi frá bæjarstjórn um vinnuferli og von um góða samvinnu nefndarmanna sín á milli og við bæjarstjórn.


Dagskrá:

1. Kosning formanns, varaformanns og ritara.
Einar Tryggvason kosinn formaður
Karl Njálsson kosinn varaformaður
Guðbrandur J. Stefánsson sér um að skrifa fundargerðir á fundum og setja á heimsíðu bæjarins.

2. Starfsmannamál félagsmiðstöðvar
Máli frestað þar til frekari upplýsingar liggja fyrir um starfsemi vetrarins.í félagsmiðstöðinni.

3. Gera könnun í vinnuskólanum fyrir félagsmiðstöðina
Könnun verður framkvæmd innan Gerðaskóla í haust þar sem vinnuskólanum er að ljúka í vikunni.

4. Púttvöllur við Auðarstofu
Farið verður í að skoða kostnað og hugsanlegt samstarf við Golfklúbb um púttvöll í nágrenni Auðarstofu.

5.  Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
 Nýr íþrótta- og æskulýðsfulltrúi bæjarins kynnti sig og fór yfir þau mál sem tengjast
hans starfssviði og ýmsar hugmyndir tengdar því. En það er Félagsmiðstöðin Eldingin, Vinnuskólinn,  Knattspyrndeild Víðis og að vera framkvæmdastjóri íþrótta- og æskulýðsnefndar bæjarins.
Guðbrandur lagði til að nefndin færi í hugmyndavinnu varðandi mannvirki og svæði sem og æskuýðsstarf í bænum. Setti sér skrifleg markmið til fjögurra ára á næsta fundi.

6. Önnur mál
 Engin önnur mál voru rædd.



Fleira ekki gert og fundi slitið kl  18:30


Til baka

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta