Leita








Félagsþjónusta

 

„Hlutverk félagsþjónustunnar almennt er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi íbúanna í sveitarfélögunum á grundvelli samhjálpar eins og kveðið er á um í lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga leitast við að tryggja íbúum bæjarfélaganna félagslegt öryggi með heildstæðri félagslegri þjónustu. Með skipulagðri félagsþjónustu er lögð áhersla á að réttur íbúa sé alltaf ljós og einstaklingum ekki mismunað með geðþóttaákvörðunum. Þjónustan er opin öllum bæjarbúum og er áhersla lögð á að mæta einstaklingum af virðingu og í fullum trúnaði. Jafnframt er lögð áhersla á að hjálpa einstaklingum til sjálfshjálpar, bæði með ráðgjöf og öðrum viðeigandi stuðningi.

Verkefni Félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga eru þau sem lög um félagsþjónustu sveitarfélaga kveða á um sem og önnur viðeigandi lög. Meðal annars er um að ræða almenna félagslega ráðgjöf sem er einn mikilvægasti þátturinn í allri vinnslu mála, fjárhagsaðstoð, málefnum aldraðra, félagslegri heimaþjónustu og málefnum fatlaðra. Félagsþjónustan kemur jafnframt að verkefnum er varðar félagslegt leiguhúsnæði eins og verkefni tengd umsjón með leiguhúsnæði í eigu sveitarfélaganna, úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis í sömu sveitarfélögum. Umsjón og umsýsla vegna húsaleigubóta og sérstakra húsaleigubóta eru einnig verkefni félagsþjónustunnar í öllum sveitarfélögunum. Málefni barna og ungmenna, þar með talin vinnsla samkvæmt barnaverndarlögum er umfangsmikill þáttur í starfinu.

 

Starfsmenn Félagsþjónustunnar
 
Fjölskyldu- og velferðarnefnd Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga
 
Hvernig er barnaverndartilkynningu komið á framfæri
 
Reglur
 

Eyðublöð

 





 

 

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta