Leita








Tónlistarskóli

Tónlistarskólinn í Garði
Garðbraut 69 A
Sími 422-7317, netfang: tonogard@svgardur.is

Skólastjóri: Eyþór Ingi Kolbeins

Tónlistarskólinn er til húsa í Sæborgu en einnig fer hluti kennslunnar fram í Gerðaskóla. Nemendafjöldi er um 50.  Kennarar eru 8 auk skólastjóra.

Boðið er upp á kennslu á hin ýmsu hljóðfæri t.d. trompet, básúnu, horn, túbu, þverflautu, blokkflautu, gítar, bassa, slagverk, harmonikku, píanó, fiðlu, selló og söng auk tónfræðigreina, samsöngs, bjöllukórs og  ýmissa samspila.  Við skólann er einnig starfræktur  barnakór í samvinnu við Gerðaskóla.  Frá því að skólinn var stofnaður hefur starfsemi hans verið mjög blómleg og farsæl. Gott samstarf er á milli tónlistarskólanna á Suðurnesjum og vinna skólarnir ýmis verkefni í sameiningu. Að auki taka nemendur tónlistarskólans virkan þátt í menningarlífi sveitarfélagsins þar sem þeir koma fram á hinum ýmsu viðburðum.

Tónlistina þekkjum við öll, hún er ríkur þáttur í lífi og starfi okkar allra.  Tónlistarnám hefur margvísleg áhrif m.a. þjálfar það huga, eykur þroska,  sköpun og tjáningarhæfni nemenda en fyrst og fremst á tónlistarnámið að veita ánægju og lífsfyllingu.

Gjaldskrá skólaársins 2008-2009 má finna með því að smella hér.

Saga tónlistarskólans

Myndir frá skólastarfinu vorið 2005

Myndir frá afmælistónleikum 31. janúar 2010

























ForsíðaPrentaVeftréHafðu sambandSjálfgefin leturstærðStækka letur
Vefur fyrir sjónskerta